Mítt fyrsta blogg

jæja nú er mitt fyrsta blogg að fæðast. Engin smá lífsreynsla Tounge.   Eins  og staðan er í dag þá á ég að vera að vinna í missó verkefninu mínu en ákvað að taka mér smá pásu og starta bloggsíðu í staðinn. En víkjum að öðru. Hér er yndislegt veður í sveitinni og ég held að sumarið sé á næsta leiti. það væri reyndar vel þegið eftir langan og snjóþungan vetur að fá æðislegt sumar.  Í dag ætla ég ásamt fjölskydunni minni að koma mági okkar á óvart með skemmtilegri gjöf. Hann á stórafmæli karlin en ætlar að arka upp á Snæfellsjökul með familíuna í stað þess að halda veislu. Mjög gott mál. Þannig að nú er málið að ná honum í dag til þess að syngja fyrir hann og afhenda honum gjöf  áður en þau leggja af stað.  þetta verður spennandi. Whistling .  jæja þetta verður að duga í dag.
Eigið góðan dag. Anna S 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dísaskvísa

Vona að helgin hafi verið góð hjá þér- sjáumst á morgun-klárar í slaginn

Kv. Dísaskvísa

Dísaskvísa, 13.4.2008 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband